

Sumarstarf við eftirlit hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
Hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands er laust til umsóknar sumarstarf við eftirlit frá 15. maí eða eftir samkomulagi.
Starfið felst í eftirliti með umhverfis- og mengunarvörnum, matvælum og hollustuháttum í fyrirtækjum og stofnunum. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er næsti yfirmaður.
Að fara í eftirlit í fyrirtæki og stofnanir.
Að sinna skráningum og skýrslugerð vegna eftirlits.
Að sinna öðrum verkefnum samkvæmt fyrirmælum framkvæmdastjóra.
Að vinna með öðrum starfsmönnum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og aðstoða eftir þörfum.
Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvísinda verkfræði eða önnur sambærileg menntun. Getur hentað þeim sem enn eru í námi.
Almenn ökuréttindi.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
Geta unnið vel undir álagi.
Jákvæðni, samviskusemi og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
Færni til að setja fram ritað mál á greinargóðri íslensku.
Tungumálakunnátta æskileg.
Góð almenn tölvukunnátta.
Reynsla af eftirlitsstörfum samkvæmt gildandi lögum, reglum og leiðbeiningum er kostur og reynsla í notkun á hugbúnaði til skráninga og eftirfylgni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Guðmundsdóttir í síma 861 8669 eða með því að senda fyrirspurn á [email protected]
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 11. maí n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir skulu sendar á tölvupósti á netfangið [email protected].
Sveigjanlegur vinnutími.
Icelandic
English
