Skatturinn - Tollgæsla Íslands
Skatturinn - Tollgæsla Íslands
Skatturinn - Tollgæsla Íslands

Sumarstarf tollvarðar á Akureyri

Við leitum að ábyrgu og traustu fólki til sumarstarfa sem tollverðir á Akureyri á tímabilinu frá 1. júní - 31. ágúst 2026. Tollverðir þurfa að hafa náð 20 ára aldri, vera með gild ökuréttindi og hreint sakavottorð. Um vaktavinnu getur verið að ræða.

Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnin snúa m.a. að eftirliti með inn- og útflutningi á vörum sem og eftirliti með ferðum og flutningi fara og fólks til og frá landinu auk þess sem viðhaft er eftirlit með flutningi og geymslu á ótollafgreiddum varningi innanlands.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Gott andlegt og líkamlegt atgervi

  • Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð

  • Almenn ökuréttindi

  • Hreint sakavottorð

Advertisement published20. February 2026
Application deadline6. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hafnarstræti 95, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags