Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Sumarstarf - þjónusturáðgjafi verkstæðismóttöku

Bílaumboðið Askja leitar að þjónustuliprum og ábyrgum aðila í sumarstarf til að sinna samskiptum og ráðgjöf til viðskiptavina Kia og Honda.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, KIA, Honda og Smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks. Virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti og móttaka viðskiptavina
  • Ráðgjöf og tilboðsgerð
  • Samvinna við þjónustuteymi verkstæðis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Færni í teymisvinnu
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Þekking á bílum kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • 20 ára aldurstakmark
Af hverju Askja?

Askja leggur áherslu á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Það gerum við með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi til að geta veitt viðskiptavinum afburðaþjónustu. Áhersla er lögð á opin og uppbyggileg samskipti. Leitað er lausna og jákvæðni höfð að leiðarljósi. Öflugt starfsmannafélag er hjá Öskju og reglulegir viðburðir og skemmtanir.

Advertisement published9. April 2026
Application deadline23. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags