Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11

Í Stjörnugróf 11 búa sex einstaklingar með flóknar samsettar greiningar. Við vinnum eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og compassionate care, þar sem mannleg virðing, stöðugleiki og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Við leitum að ábyrgum, hlýjum og áhugasömum einstaklingum í sumarstarf.

Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í nýlegum búsetukjarna.

Boðið er upp á sumarstarf í vaktavinnu (dag-, stubba-, milli-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir). Æskilegt er að umsækjendur geti tekið fjölbreyttar vaktir yfir sumarið. Starfshlutfall samkomulagsatriði.

Af hverju Stjörnugróf 11?

Í Stjörnugróf 11 starfar öflugur og samheldinn hópur fólks sem leggur ríka áherslu á fagmennsku, stöðugleika og jákvæð samskipti.

Hér gefst tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu á sviði velferðar- og stuðningsþjónustu og efla samskiptahæfni, sjálfsþekkingu og faglegan þroska í krefjandi og gefandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur meðal annars í sér:

  • Að styðja íbúa til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og hvatningu
  • Að veita stuðning við ólíkar birtingarmyndir hegðunar af ró, skilningi og stöðugleika
  • Að aðstoða við athafnir daglegs lífs, heimilishald og virkni
  • Að styðja við samfélagsþátttöku og jákvæð samskipti
  • Að vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Aldur 20 ára eða eldri er skilyrði
  • Góð almenn menntun
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum
  • Stöðugleiki og geta til að halda ró undir álagi
  • Framtakssemi, dugnaður og vilji til að læra
  • Góð íslenskukunnátta (að lágmarki B1)
  • Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi

Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Advertisement published19. February 2026
Application deadline12. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Optional
Advanced
Location
Stjörnugróf 11, 108 Reykjavík
Type of work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags