66°North
66°North
66°North

Sumarstarf í verslunum 66°Norður

66°NORÐUR leitar að dugmiklum einstaklingum til sumarstarfa í verslanir 66°Norður. Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf.

Hæfniskröfur:

  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu
  • Áhugi á sölumennsku
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku eða öðrum tungumálum er kostur
  • Reynsla af sölustörfum kostur

Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 19 ára aldri.

Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.

Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°NORÐUR en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Í dag starfa tæplega 500 manns hjá Sjóklæðagerðinni og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Á Íslandi rekur Sjóklæðagerðin 11 verslanir undir vörumerkinu 66°NORÐUR og í Kaupmannahöfn eru tvær verslanir þar sem sú fyrsta opnaði í lok árs 2014. Árið 2019 var opnuð skrifstofa í Lundúnum.

Haldið er utan um allar umsóknir sem berast. Það er því mikilvægt að umsóknareyðublaðið sé fyllt út eins vel og kostur er. Mælt er með því að þú setjir einnig inn ferilskrá sem viðhengi. Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðningum er lokið.

Umsóknir eru geymdar í 6 mánuði, en eftir þann tíma er þeim eytt. Kjósir þú að umsókn verði eytt innan þess tíma skal senda tölvupóst á [email protected]

Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Advertisement published7. March 2025
Application deadline18. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags