
Mosfellsbær
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 14.000 íbúa. Sveitarfélagið er staðsett í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Hjá Mosfellsbæ starfa um 1200 starfsmenn.
Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara saman. Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag sem miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, bæði íbúa og starfsmanna.

Sumarstarf í upplýsingatækni
Mosfellsbær leitar að metnaðarfullum einstaklingi í námi í kerfisstjórnun til að sinna fjölbreyttum verkefnum í upplýsingatækni í sumar. Um er að ræða tækifæri fyrir nemanda til að öðlast hagnýta reynslu af tækjastýringu og viðhaldi á netkerfum í lifandi skólaumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið er fjölbreytt og felur í sér bæði kerfisstjórnun í skýjalausnum og vinnu með vélbúnað á staðnum:
- Tækjastýring (MDM): Sameining og skráning allra iPad skólanna í Jamf umsjónarkerfið. Uppsetning, stillingar og tryggja að öll tæki séu rétt uppfærð á skráð miðlægt.
- Viðhald Chromebook tækja: Yfirfara og prófa Chromebook tölvur sem notaðar eru í skólastarfinu, sjá um uppsetningar (provisioning) og tryggja að þær séu tilbúnar fyrir næsta skólaár.
- Netbúnaður og innviðir: Yfirfara tengingar í tæknirýmum. Þetta felur í sér að snyrta snúrur í skápum, merkja þær og rekja (trace) tengingar við svissa.
- Önnur tilfallandi verkefni: Almenn aðstoð við notendur og viðhald á tölvubúnaði eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun: Viðkomandi sé í námi í kerfisstjórnun eða öðru sambærilegu tölvunámi.
- Netbúnaður: Reynsla eða ríkur áhugi á netuppsetningum og netkerfum almennt er mikill kostur.
- Vinnubrögð: Krafa er gerð um vönduð og skipulögð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að sýna nákvæmni í merkingu búnaðar og geta fylgt ferlum við tækjastýringu.
- Frumkvæði: Geta til að vinna sjálfstætt og leysa verkefni af fagmennsku.
Advertisement published17. April 2026
Application deadline27. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (2)

