Lyfjastofnun
Lyfjastofnun

Sumarstarf - Gæðaritari

Við leitum að skipulögðum og nákvæmum sumarstarfsmanni til að taka þátt í mikilvægu verkefni við uppfærslu og samræmingu gæðaskjala í stjórnkerfi stofnunarinnar. Starfið hentar sérstaklega vel fyrir háskólanema eða einstakling sem hefur áhuga á skipulagi, ferlum, textagerð og gæðamálum.

Í starfinu munt þú vinna með gæða- og öryggisstjóra og öðrum starfsmönnum að því að einfalda, bæta og samræma skjöl þannig að þau verði skýr, aðgengileg og notendavæn.

Samið verður um starfstímabil við ráðningu en miðað er við að það falli innan tímabilsins 1. maí til 31. ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fara yfir og uppfæra núverandi gæðaskjöl
  • Aðstoða við að samræma framsetningu og uppsetningu skjala
  • Skrásetja og móta skjöl fyrir ferla sem vantar skráningu
  • Vinna með ferlaeigendum að því að skýra og einfalda verklýsingar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnsýslu, viðskipta, verkfræði, upplýsingafræði eða sambærilegu sviði, er kostur
  • Gott vald á íslensku og hæfni til skýrrar og vandaðrar textasetningar
  • Góð almenn tölvukunnátta og færni í Microsoft 365
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni til að greina upplýsingar og setja fram á skýran og hnitmiðaðan hátt
  • Áhugi á ferlum, skipulagi og umbótastarfi er mikilvægur kostur
Advertisement published14. April 2026
Application deadline24. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Vínlandsleið 14
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.Quality tracking systems
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags