
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Lækjamót
Suðurnesjabær óskar eftir að ráða sumarstarfsmann á heimili fyrir einstaklinga með fjölbreyttan vanda. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, við aðstoðum við athafnir daglegs lífs og er nálægð við íbúa mikil.
Fimm íbúða búsetukjarni er að Lækjamótum og um er að ræða heimili með sólarhringsþjónustu og þjónustan aðlöguð miðað við þarfir íbúa.
Um er að ræða 80-100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í júní eða eftir samkomulagi. Starfið er unnið er á blönduðum vöktum allan sólarhringinn og því um vaktavinnu að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Félagslegur stuðningur
- Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Góð íslensku kunnátta
- Getur unnið allar vaktir (dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir)
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2026.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnar Júlíusson, forstöðumaður búsetuþjónustu á netfanginu [email protected]
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með tæplega 4.400 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitarfélaginu, m.a. með uppbyggingu nýrra hverfa og byggingu nýs leikskóla. Í Suðurnesjabæ eru tveir grunnskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn og Þekkingarsetur. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður uppá nálægð við náttúruna og einstaka strandlengju sem umvefur sveitarfélagið.
Icelandic










