Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Sumarafleysing - Starfsmaður í heimaþjónustu

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til sumarstarfs í heimaþjónustu í Fjarðabyggð. Að öllu jafna er inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega, staðsetningin er því breytileg. Um er að ræða tímabundið 100% starfshlutfall.

Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Félagslegt innlit og stuðningur
  • Aðstoð við heimilishald, svo sem daglegar athafnir, innkaup og fl.
  • Veita persónulega aðstoð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
  • Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð
  • Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota
Advertisement published18. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Fjarðabyggð
Type of work
Professions
Job Tags