Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Sumar- og framtíðarstarf - Söluráðgjafi notaðra bíla

Bílaumboðið Askja leitar að metnaðarfullum og drífandi aðila í sumarafleysingar og framtíðarstarf sem söluráðgjafa notaðra bíla. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, KIA, Honda og Smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks. Virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka viðskiptavina, þjónusta og ráðgjöf
  • Símsvörun og svörun tölvuskilaboða
  • Framsetning bíla, verðmerkinga og annars efnis á sýningarsvæði
  • Úthringiverkefni
  • Eftirfylgni með sölu og frágangur gagna
  • Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustörfum æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Góð þjónustulund
  • Fagmennska og jákvæðni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
  • Gild ökuréttindi
Af hverju Askja?

Askja leggur áherslu á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Það gerum við með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi til að geta veitt viðskiptavinum afburðaþjónustu. Áhersla er lögð á opin og uppbyggileg samskipti. Leitað er lausna og jákvæðni höfð að leiðarljósi. Öflugt starfsmannafélag er hjá Öskju og reglulegir viðburðir og skemmtanir.

Advertisement published3. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags