Vesturbæjarskóli
Vesturbæjarskóli

Stundakennari

Við í Vesturbæjarskóla leitum að stundakennara til að sinna afleysingakennslu þegar þörf er á. Starfið hentar vel fyrir einstakling sem hefur áhuga á að vinna með börnum og vill taka þátt í fjölbreyttu og lifandi skólastarfi. Stundakennarar eru kallaðir til eftir þörfum og getur starfið því hentað vel með námi eða öðru starfi. Vesturbæjarskóli er grunnskóli fyrir börn í 1.–7. bekk. Við leggjum áherslu á faglegt, fjölbreytt og skapandi skólastarf þar sem vellíðan barna, góð samskipti og gleði í námi eru í fyrirrúmi. Einkunnarorð skólans eru virðing, vellíðan og velgengni og við leggjum ríka áherslu á samstarf og góðan starfsanda. Á heimasíðu skólans má lesa meira um skólastarfið: https://vesturbaejarskoli.reykjavik.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forfallakennsla t.d. vegna tilfallandi styttri veikinda eða leyfa kennara.
  • Samstarf við kennara og/eða foreldra eins og við á um nám og þroska nemenda.
  • Fylgja stefnu skólans og skólanámskrá og vinna í teymi.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • er með kennaramenntun og kennsluréttindi eða háskólamenntun sem nýtist í starfi, kennslureynsla er æskileg,
  • sýnir börnum áhuga, hlýju og umhyggju,
  • ber virðingu fyrir fjölbreytileika og ólíkum þörfum barna,
  • á auðvelt með að skapa góð tengsl við börn og fullorðna,
  • er sveigjanlegur, jákvæður og lausnamiðaður,
  • getur unnið vel í teymi og tekið virkan þátt í skólastarfinu.
Advertisement published8. September 2026
Application deadline22. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sólvallagata 67, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relations
Suitable for
Professions
Job Tags