
Seyðisfjarðarskóli
Seyðisfjarðarskóli skiptist í grunnskóladeild, leikskóladeild og listadeild.
Sýn skólans er sú að í hverjum nemenda búi fjársjóður. Hlutverk skólans er að þroska þann sjóð, mennta ábyrga, hæfa og skapandi einstaklinga í samvinnu við heimilin og nánu samstarfi deildanna, í samræmi við aðalnámskrá leik-og grunnskóla, lög og reglugerðir.
Í nýrri skólastefnu kemur fram að leiðarljós starfsins sé góð samvinna, lýðræði og jafnrétti og jafnramt að sköpunarkraftur, sjálfbærni, fjölbreytileiki og gagnrýnin hugsun einkenni skólastarf í öllum deildum.

Stuðningsfulltrúi óskast í Seyðisfjarðarskóla.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með börnum í skóla- og frístundastarfi. Um er að ræða 100 % starf frá 1. nóv. næstkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita nemendum stuðning í daglegum athöfnum og námi.
- Að vera kennurum til aðstoðar með nemendur sem þurfa sértæka aðstoð.
- Að auka færni og sjálfstæði nemenda, námslega og í daglegum athöfnum í samstarfi við foreldra og kennara.
- Að sinna gæslu nemenda í matsal og á skólalóð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipuleg vinnubrögð.
- Áhugi og metnaður að vinna með börnum.
- Fagmennska í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta.
Advertisement published25. October 2026
Application deadline8. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Type of work
Skills
ProactiveAmbitionIndependence
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Skóla- og frístundaliði - frístundaheimilið Álfakot Engidalsskóla
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Skemmtileg hlutastörf í frístundaheimilum í Grafarholti og Grafarvogi
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn