Suðurbæjarskóli ehf.
Suðurbæjarskóli ehf.
Suðurbæjarskóli ehf.

Stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúi vinnur með börnum á yngsta stigi sem þurfa aukinn stuðning vegna hegðunar-, tilfinninga- eða félagslegra erfiðleika.
Starfið felst meðal annars í að styðja nemendur í daglegu skólastarfi, námi, samskiptum og félagsfærni, aðstoða við að skapa fyrirsjáanlegt og öruggt skólaumhverfi og vinna með kennurum og öðru fagfólki að einstaklingsmiðaðri nálgun fyrir hvern nemanda.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk geti myndað góð tengsl við börn, haldið ró sinni við krefjandi aðstæður og unnið af hlýju og samkennd.
Starfið er fjölbreytt og getur meðal annars falið í sér aðstoð í kennslustundum, leik og útiveru, einstaklingsstuðning, félagsfærniþjálfun og aðstoð við nemendur við að takast á við erfiðar aðstæður og komast aftur í jafnvægi.

Suðurbæjarskóli er lítið og sérhæft skólaúrræði fyrir börn á yngsta stigi sem þurfa tímabundið meiri stuðning en hægt er að veita í hefðbundnu skólaumhverfi. Við vinnum með litla nemendahópa og leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun, góð tengsl, skýra umgjörð og náið samstarf starfsfólks.

Á vinnustaðnum starfar þverfaglegt teymi sem vinnur saman að því að skapa öruggt, fyrirsjáanlegt og uppbyggilegt umhverfi fyrir nemendur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við nemendur í daglegu skólastarfi og námi
  • Aðstoð við samskipti, félagsfærni og tilfinningastjórnun
  • Þátttaka í kennslustundum, útiveru, leik og öðrum verkefnum skóladagsins
  • Að stuðla að öruggu, fyrirsjáanlegu og jákvæðu skólaumhverfi
  • Að vinna eftir einstaklingsbundnum markmiðum og stuðningsáætlunum nemenda
  • Náið samstarf við kennara og annað starfsfólk skólans
  • Að bregðast rólega og faglega við krefjandi aðstæðum
  • Þátttaka í teymisvinnu og daglegu skipulagi starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum eða ungmennum æskileg
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur, t.d. á sviði uppeldis-, félags- eða menntavísinda
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Hæfni til að mynda góð og traust tengsl við börn
  • Þolinmæði, festu og ró í krefjandi aðstæðum
  • Sveigjanleiki, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Ábyrgð, stundvísi og fagleg vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð nauðsynlegt
Advertisement published5. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Ölduslóð 40, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags