Austurbæjarskóli
Austurbæjarskóli

Stuðningsfulltrúi

Austurbæjarskóli auglýsir starf stuðningsfulltrúa laust til umsóknar.

Austurbæjarskóli er rótgróinn grunnskóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru 350 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Framtíðarsýn skólans er: Framsækinn skóli fyrir alla. Skólinn leggur sig fram um að vera í fararbroddi hvað varðar fjölbreytta náms- og kennsluhætti þar sem allir hafa jafnan aðgang að lærdómsferlinu. Lögð er áhersla á að varða leið nemenda í námi, vinna með reynsluheim, hvetja til samvinnu og auka metnað og árangur. Austurbæjarskóli er vinnustaður fyrir hugmyndaríkt og skapandi fagfólk sem sýnir metnað í starfi, ber hag nemenda fyrir brjósti og leggur sig fram um að sinna þörfum barna og unglinga.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vera kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð
  • Að aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs
  • Að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum

Hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í stuðningsfulltrúa eða góð almenn menntun.
  • Reynsla og áhugi að vinna með börnum.
  • Sveigjanleiki og hæfni í samskiptum.
  • Frumkvæði, jákvæðni, og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna í hóp.

Um er að ræða tímabundið 70% starf eftir samkomulagi sem laust er út skólaárið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis. 

Advertisement published22. June 2026
Application deadline2. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags