Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit

Stuðningsaðilar í Hvalfjarðarsveit

Velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar auglýsir eftir einstaklingum til starfa sem stuðningsaðilar (áður liðveisla) fyrir börn og unglinga. Félagslegur stuðningur er persónulegur stuðningur sem miðar að því að efla börn og ungmenni í félagslegum samskiptum og þátttöku í daglegu lífi, til dæmis með aðstoð við að njóta tómstunda, menningar og lista.

Við leitum að einstaklingum sem hafa náð 18 ára aldri, óháð kyni. Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf og greitt er fyrir akstur.

Um er að ræða tímavinnu, yfirleitt seinnipart dags og/eða um helgar og er því tilvalið sem aukastarf með námi eða öðru starfi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Freyja Þöll Smáradóttir, deildarstjóri velferðar- og fræðsludeildar í síma 433-8500 eða á netfanginu [email protected]

Advertisement published5. March 2026
Application deadline20. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags