Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með ungmennum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir laus til umsóknar störf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga og meðferðarvinna í samvinnu við stjórnendur og sálfræðinga. 
  • Vinna að tómstundastarfi, starfsþjálfun og stuðningi í námi. 
  • Umönnun og tryggja öryggi skjólstæðinga. 
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.  
  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu. 
  • Almenn heimilisstörf. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði. 
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi, t.d. reynsla af öryggisgæslu, meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarfi. 
  • Jákvætt viðhorf og áhugi á að starfa með ungmennum. 
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Íslensku- og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli. 
  • Gild ökuréttindi. 
Advertisement published16. November 2026
Application deadline30. November 2026
Language skills
ÍslenskaÍslenska
Required
Mjög góð
EnskaEnska
Required
Meðalhæfni
Location
Lækjarbakki, Gunnarsholti við Hellu
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags