Í-Mat ehf.
Í-Mat ehf.
Í-Mat ehf.

Starfsmannastjóri

Í-MAT/Matarstund er ört vaxandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í hollum, heimilislegum hádegismat fyrir fyrirtæki og skóla á höfuðborgarsvæðinu. Við leitum nú að drífandi og metnaðarfullum starfsmannastjóra sem vill leiða mannauðsmál hjá fyrirtækinu.

Um starfið

Sem starfsmannastjóri Í-MAT munt þú leiða alla þætti mannauðsstefnu okkar hjá Í-MAT og dótturfyrirtækjum – frá ráðningum og móttöku nýliða til þróunar starfsfólks, stuðnings við stjórnendur og eflingar á jákvæðri vinnustaðamenningu.

Helstu verkefni

  • Skipuleggja og leiða ráðningarferli og innleiðingu nýrra starfsmanna
  • Móta og innleiða stefnu í mannauðsmálum og starfsþróun
  • Sinna kjaramálum, fjarvistarskráningu og tengslum við launadeild
  • Þróa jákvæða og heilbrigða vinnustaðamenningu

Við leitum að manneskju sem

  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. mannauðsstjórnun, sálfræði eða sambærileg menntun)
  • Hefur reynslu af mannauðsmálum (kostur)
  • Er skipulögð, lausnamiðuð og með hæfni til að leiða breytingar
  • Hefur áhuga á heilsu, fólki og bættri líðan á vinnustað

Við bjóðum þér

  • Hlýlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á stefnu og velferð starfsfólks
  • Sveigjanleika og stuðning í starfi
  • Góð laun og heilsusamlegan hádegismat daglega

Umsóknarfrestur og ferli

Sendu umsókn og ferilskrá hér að neðan, allar helstu upplýsingar veitir [email protected]. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og leiða ráðningarferli og innleiðingu nýrra starfsmanna
  • Móta og innleiða stefnu í mannauðsmálum og starfsþróun
  • Sinna kjaramálum, fjarvistarskráningu og tengslum við launadeild
  • Þróa jákvæða og heilbrigða vinnustaðamenningu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. mannauðsstjórnun, sálfræði eða sambærileg menntun)
Fríðindi í starfi
  • Góð laun og heilsusamlegan hádegismat daglega
Advertisement published22. August 2025
Application deadline12. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Fjarðargata 11, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags