Sunnuhlíð
Sunnuhlíð
Sunnuhlíð

Starfsmaður í Smart líkasmrækt Sunnuhlíð, nemar í íþróttafræði eða sjúkraþjálfun

Starfið hentar vel fyrir einstaklinga sem stunda nám í sjúkraþjálfun eða íþróttafræði eða hafa annars konar bakgrunn og áhuga sem tengist hreyfingu. Um er að ræða 25% starfshlutfall og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf upp úr miðjum maí en annars eftir samkomulagi. Unnið er mánudaga og fimmtudaga (kl. 15.00 - 18.00), annan hvern þriðjudag (15.00 – 18.00) og annan hvern laugardag (9.00 – 12.00).

Starfið felur í sér að taka á móti gestum Smart líkamsræktar og vera þeim innan handar við æfingar í tækjasal, setja upp æfingaprógrömm og kenna á tækin. Í starfinu felst einnig umsjón með hóptímum eða einstaklingsmiðaðri þjálfun, auk daglegra verkefna svo sem tímabókana, símsvörunar, sölu á líkamsræktarkortum og frágangs.

Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, fagleg vinnubrögð og góðan liðsanda og hvetjum áhugasama til að senda okkur umsókn.

Helstu verkefni:

  • Móttaka og aðstoð við gesti í Smart líkamsrækt
  • Gerð æfingaáætlana
  • Hópþjálfun og/eða einstaklingsmiðuð þjálfun
  • Kennsla á æfingatæki
  • Önnur störf sem viðkoma líkamsræktinni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Nám eða reynsla sem tengist hreyfingu s.s. íþróttafræði eða sjúkraþjálfun
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Gott vald á íslensku

Starfið er laust frá miðjum ágúst, mögulega vel. Hentar vel sem starf með skóla.

Upplýsingar:

Kristín Harðardóttir, deildarstjóri sjúkraþjálfunar, veitir frekari upplýsingar um starfið á [email protected] eða í síma 854 8972.

Frekari upplýsingar um Smart líkamsrækt Sunnuhlíð er að finna á https://vigdisarholt.is/sunnuhlid-smartlikamsraekt/

Advertisement published27. July 2026
Application deadline7. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Kópavogsbraut 1C, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags