

Starfsmaður í ræstingu við Flóaskóla
Flóaskóli er staðsettur í Villingaholti í Flóahreppi, í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu, leiðsagnarnám og öfluga stoðþjónustu. Mikil áhersla er á list- og verkgreinar. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði "Uppeldi til ábyrgðar" og unnið er markvisst með samskipti og líðan nemenda. Einkunarorð skólans eru hugur – hjarta – hönd.
Í Flóaskóla vantar okkur metnaðarfullan og jákvæðan einstakling í 100% starf til að sjá um ræstingar á skólahúsnæðinu
Möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma í samkomulagi við skólastjóra sem er næsti yfirmaður.
• Almenn þrif á skólahúsnæði
• Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf til verkefna
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Stundvísi og samviskusemi
- Hreint sakavottorð







