
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Starfsmaður í Örva og Dvöl
Örvi er starfsþjálfun/iðja þar sem unnið er að því að styðja fatlað fólk til starfa á almennum vinnumarkaði með tímabundinni starfsprófun.
Dvöl er samfélagshús ætlað fólki með geðrænar áskoranir, þar sem markmiðið er að rjúfa einangrun og efla daglega virkni. Áhersla er lögð á að skapa hlýlegt umhverfi, og nálgast alla með virðingu.
Bæði í Örva og Dvöl er unnið eftir þeim meginhugmyndum sem birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að.
Leitað er að jákvæðum og drífandi einstaklingi til starfa í Örva og Dvöl. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í Örva:
- Að framfylgja þjálfunaráætlunum og faglegu mati sem forstöðumaður og/eða starfsráðgjafar hafa umsjón með
- Hafa umsjón með vinnu verkefna í vinnusal
- Styðja einstaklinga með skerta starfsgetu í starfsprófun
- Samskipti við viðskiptavini Örva, sjá um móttöku og skráningu pantana
- Hafa umsjón með framleiðslu í plastvélum
Í Dvöl:
- Að veita gestum hvatningu og stuðning á nærgætinn hátt
- Að sinna innkaupum, eldamennsku einfaldra máltíða og daglegum þrifum
- Skipulagning og framkvæmd smærri viðburða og samverustunda í vikudagskrá
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi, félagsliða- eða stuðningsfulltrúamenntun er kostur
- Reynsla af vinnu með fötluðu fólki
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Framtakssemi og jákvætt viðhorf í starfi
- Frumkvæði, vandvirkni og skipulagshæfileikar
- Góð líkamleg geta og styrkur til að lyfta þungum hlutum
- Góð íslenskukunnátta
Advertisement published27. August 2026
Application deadline10. September 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Kársnesbraut 110, 200 Kópavogur
Reynihvammur 43, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
ProactivePositivityPhysical fitnessConscientiousPlanningCare (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Deildarstjóri yfir sjálfstæðri búsetu
Sólheimar ses.

Bílstjóri í þjónustu við fatlaða og eldri borgara
Teitur

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða leikskólaliði óskast til starfa
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Starfsmaður á heimili fatlaðs fólks
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Lindaskóli leitar að góðum stuðningsfulltrúa
Lindaskóli

NPA aðstoðarfólk óskast
NPA miðstöðin

Frístundaleiðbeinandi
Frístundamiðstöðin Þorpið

Garðahraun auglýsir eftir stuðningsfulltrúum
Garðabær

Starf í sérkennslu
Ævintýraborg ið Eggertsgötu

Kvíslarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í haust.
Kvíslarskóli