Húnabyggð
Húnabyggð

Starfsmaður í mötuneyti Húnaskóla 100% starf

Starfið felst í aðstoð við stjórnenda mötuneytis hvað varðar rekstur og eldamennsku í mötuneyti Húnaskóla.

Áætlaður fjöldi daglegra gesta er um 350, þar af um 250 börn og tæplega 100 fullorðnir. Fjöldi gesta getur breyst milli ára í takt við íbúaþróun og aðrar breytingar sem gerðar eru á rekstri sveitarfélagsins.

Í góðu samráði og samstarfi við menntastofnanir og skrifstofu sveitarfélagsins spilar mötuneytið lykilhlutverk í þróun og útfærslu lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Lögð er áhersla á að vinna með einfaldan, ferskan og hefðbundin íslenskan mat og matvæli. Lögð er áhersla á að vinna með hráefni úr héraði þegar það er mögulegt.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf við byrjun skólaárs eða sem fyrst í ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn störf í mötuneyti

Aðstoð við Innkaup og birgðastýringu

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun á sviði matreiðslu og/eða matargerðar

Reynsla af störfum í mötuneyti eða veitingastöðum

Frumkvæði, jákvæðni og sköpunargleði

Samskiptahæfileikar eru mikilvægir

Reynsla af innkaupum og birgðastjórnun æskileg

Góð íslenskukunnátta

Hreint sakavottorð

Advertisement published29. May 2026
Application deadline27. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Húnabraut 2, 540 Blönduós
Type of work
Professions
Job Tags