

Starfsmaður í kjötborð & eldhús
Melabúðin auglýsir eftir fjölhæfum starfsmanni í fullt starf.
Við leitum að ábyrgum og glaðlyndum einstaklingi í sælkeraverslun sem leggur metnað sinn í góða þjónustu og er með eitt breiðasta vöruúrval landsins í matvöru.
Við kvetjum öll kyn til þess að sækja um! Við í Melabúðinni erum þétt og náið teymi og viljum fá einstakling sem passar í hópinn.
Unnið er á 2-2-3 frá kl.08-19 á virkum dögum og kl.9-20 um helgar.
· Eldhúsvinna m.a. að elda kjúkling
· Afgreiðsla í kjöt- og fiskborði, ásamt tilfallandi eldhússtörfum
· Prepp/undirbúningsvinna
· Uppvask
· Móttaka og frágangur á vörum
· Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Reynsla af matreiðslu / sambærilegum störfum MIKILL kostur
· Metnaður í sölumennsku og upplifun viðskiptavina
· Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
· Reynsla af þjónustustörfum kostur
· Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
· 18 ára aldurstakmark
Icelandic
English










