
Akraborg ehf.
Niðursuðuverksmiðjan Akraborg var stofnuð á Akranesi árið 1989. Í rúm 20 ár hefur fyrirtækið verið leiðandi í framleiðslu á hágæða niðursoðinni þorsklifur og er í dag stærsti framleiðandi sinnar tegundar í heiminum.
Fyrirtækið gekk á síðastliðnum árum gegnum mikið endurnýjunarferli og útlitsbreytingu og hlaut að því tilefni nýtt nafn og nýtt merki, Akraborg (kennitala hélst óbreytt). Merki Akraborgar vísar til verksmiðju sem staðsett er við og vinnur úr hafinu en rauði liturinn stendur fyrir þann eldmóð og kraft sem í starfsfólkinu býr.
Hjá Akraborg starfa í dag um 37 manns og nemur heildarframleiðsla fyrirtækisins um 11 milljónum dósa á ári. Þótt fyrirtækið sérhæfi sig í niðursoðinni þorsklifur eru aðrar vörutegundir s.s.þorsklifarapaté, niðursoðin svil og heitreykt loðna einnig framleiddar í umtalsverðu magni.
Akraborg kaupir hágæðahráefni af mörgum öflugustu og framsæknustu fiskvinnslum og útgerðum landsins en birgjar Akraborgar dreifast vítt og breytt um landið.
Vörur fyrirtækisins eru seldar víðsvegar um heim s.s. Vestur- og Austur-Evrópu, Kanada og Asíu.
Akraborg hefur MSC rekjanleikavottun fyrir Atlantshafs þorsk. C-TUN-1008.
Akraborg kaupir þorsklifur, skötuselslifur og annað hráefni hringinn í kringum landið af smábátum, útgerðum, fiskvinnslum og slægingarstöðvum. Hráefnið kaupum við á staðnum og borgum flutningskostnað á Akranes.

Starfsmaður í gæða- og vöruþróunarteymi
Akraborg er leiðandi í framleiðslu á hágæða matvælum og gæludýraafurðum. Við erum að leita að öflugum starfskrafti í gæða- og vöruþróunarteymið okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með rannsóknarstofu fyrir efna- og örverumælingar
- Taka virkan þátt í vöruþróunarverkefnum
- Kemur að verkefnum gæðatryggingar. Svo sem sjá um daglegan rekstur, viðhald og stöðugar umbætur á gæðastjórnunarkerfi og tryggja samræmi við staðla og reglur fyrir framleiðendur á matvælum.
- Vera í samstarfi þvert á teymi til að knýja fram stöðugar umbætur.
- Sinnir fræðslu til starfsmanna á sviði gæða- og öryggismála.
- Miklir möguleikar á framþróun í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun er nýtist í starfi (t.d. í raunvísindum eða heilbrigðisvísindum).
- Reynsla af vinnu á rannsóknarstofu kostur
- Þekking og reynsla af gæðamálum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, mikið frumkvæði og lausnamiðuð vinnubrögð
- Hæfni og reynsla af framsetningu efnis og miðlun þess
- Jákvætt viðhorf, þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Advertisement published13. August 2026
Application deadline25. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kalmansvellir 6, 300 Akranes
Type of work
Skills
ReliabilityProactiveClean criminal recordPositivityAmbitionResearchTeam workQuality tracking systems
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – starf með tilgang
Andrastaðir

Nesbú leitar að starfsfólki í fullt starf/Nesbú is looking for full time staff (Nesjavellir)
Nesbú

Klettaskóli-Korpu, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann
Klettaskóli

Hressar aðstoðarkonur óskast á þriðjudögum og um helgar
Anna Kristín Jensdóttir

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf
Landspítali

Sláturtíð, Frítt fæði og húsnæði
Fjallalamb.hf

Óska eftir félagslyndri og skemmtilegri aðstoðarkonu
NPA miðstöðin

Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf

Cleaning of vehicles
BusTravel Iceland ehf.

Almennur starfsmaður í kjötvinnslu
Stjörnugrís hf.

Aðstoðarkona - vaktavinna
Aðstoð óskast

Starfsmaður í Matvælaframleiðslu Reykjanesbær
Álfasaga ehf