
Norðurorka hf.
Norðurorka hf. rekur fjölbreytta veitustarfsemi á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu.
Meginhlutverk fyrirtækisins er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfis raforku og rekstri fráveitu.
Norðurorka hf. er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001).

Starfsmaður í birgðahaldi
Norðurorka leitar að metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi til starfa á lager. Starfið felst í birgðahaldi, afgreiðslu og þjónustu við allar deildir Norðurorku, auk verktaka sem koma að framkvæmdum á vegum fyrirtækisins.
Starfið tilheyrir veitu- og tæknisviði og næsti yfirmaður er innkaupastjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og frágangur á vörum
- Afgreiðsla og skráning vara í verkbókhald
- Tiltekt og þrif lagersvæða
- Undirbúningur innkaupapantana
- Vörutalning
- Önnur verkefni sem til falla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, iðnmenntun kostur
- Lyftararéttindi eru skilyrði
- Reynsla af lagerstörfum er kostur
- Þekking á birgðastjórnunarkerfum er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði, jákvæðni og þjónustulipurð
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsueflingarstyrkur
- Símtækjastyrkur
- Niðurgreitt mötuneyti
Advertisement published2. March 2026
Application deadline12. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Rangárvellir 4, 603 Akureyri
Type of work
Skills
Stock managementProactivePositivityStockroom workForklift licenseAmbitionConscientiousIndependencePlanningCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Fullt starf hjá Gæludýr.is á AKUREYRI
Waterfront ehf

Sumarstarf í birgðastýringu
Krónan

Birgðahald á Klíníkinni
Klíníkin Ármúla ehf.

Sumarstörf í BYKO Leigu Breidd og Selhellu
BYKO Leiga og fagverslun

Fjölbreytt sumarstörf / Various summer positions
Bananar

Sumarstarf á verkstæði á Akureyri
Þór hf

Sumarstarf í verslun á Akureyri
Þór hf

Lager - Útkeyrsla
Donna ehf.

Sumarstörf hjá BL
BL ehf.

Lager og framleiðslustarf - Sumarstarf
Bústólpi ehf

Útkeyrsla Bílanaust
Bílanaust

Sölumaður í verslun á Akureyri
Sportver