Ljósameistarinn ehf
Ljósameistarinn ehf

Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði

Vegna aukinna umsvifa og áframhaldandi stækkunar leitum við hjá Ljósameistaranum að öflugum og fjölhæfum starfsmanni á verkstæðið okkar!

Starfið felst fyrst og fremst í uppsetningu á ljósum, rafbúnaði og öðrum aukahlutum í bíla.

🔧 Helstu verkefni

  • Uppsetning á ljósum, rafbúnaði og öðrum aukahlutum í bíla.

  • 3D hönnun og teikning hluta til þrívíddarprentunar, ef þekking er til staðar.

  • Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina eftir þörfum.

🙋 Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur góða þekkingu á bílum og rafkerfum þeirra.

  • Er handlaginn, vandvirkur og lausnamiðaður.

  • Getur unnið sjálfstætt og sýnir frumkvæði.

  • Hefur góða þjónustulund og á auðvelt með samskipti.

  • Hefur þekkingu á 3D hönnun og þrívíddarprentun (kostur, en ekki skilyrði).

⭐ Við bjóðum

  • Fjölbreytt og spennandi 100% starf í ört vaxandi fyrirtæki.

  • Góða vinnuaðstöðu og fjölbreytt verkefni.

  • Skemmtilegt starfsumhverfi og öflugan starfsanda.

  • Tækifæri til að þróast í starfi og taka aukna ábyrgð.

📍 Starfsstöð: Eldshöfði 16, Reykjavík

📩 Umsóknir berist í gegnum Alfreð og fyrirspurnir á: [email protected]

Áhugasamir sendi stutta kynningu á sér og fyrri starfsreynslu.

Þekkir þú rétta einstaklinginn? Endilega deildu auglýsingunni!

Advertisement published29. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Eldshöfði 16, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags