Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Starfsmaður á þjónustustöðinni í Garðabæ

Vegagerðin óskar eftir traustum starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustustöðinni í Garðabæ.

Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsmenn eru þar að auki á föstum vöktum frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.

Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar.

  • Eftirlit með færð á vegum og upplýsingagjöf um ástand vega.
  • Vinna við uppsetningu og viðhald umferðarmerkja, vegvísa, stika og vegriða.
  • Holuviðgerðir og hreinsun ristahliða og hreinsun vegsvæða. 
  • Ýmis önnur vinna á þjónustustöð.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn ökuréttindi skilyrði.
  • Vinnuvélaréttindi æskileg. 
  • Meirapróf æskilegt. 
  • Góð öryggisvitund. 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp.
  • Gott vald á íslensku.
  • Almenn tölvukunnátta.
Advertisement published3. June 2026
Application deadline15. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags