
Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin hefur verið í rekstri í um 40 ár. Dekkjahöllin er með starfstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum, Garðabæ og á tveimur stöðum Reykjavík. Fyrirtækið rekur hjólbarðaþjónustu á öllum starfstöðvum, smurstöðvar á Akureyri og Egilsstöðum og þvottastöð á Akureyri. Fyrirtækið er jafnframt innflutningsaðili sem starfar bæði á fyrirtækja og einstaklingsmarkaði. Dekkjahöllin er systurfyrtæki Öskju, Lotus Car Rental, Una (Xpeng), Landfara og Hentar.
Í Dekkjahöllinni hefur ávallt verið lögð rík áhersla á fljóta og góða þjónustu. Jafnframt er áhersla á að selja úrval af vönduðum og góðum dekkjum fyrir kröfuharða ökumenn.
Mannauður fyrirtækisins er verðmætur og fjölmargir starfsmenn hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi. Uppsöfnuð reynsla starfsmanna er gríðarleg. Til gamans má nefna að samanlagður starfsaldur þeirra 27 fastráðnu starfsmanna í lok árs 2020 voru tæp 275 ár eða 10 ár að meðaltali.
Framúrskarandi og til fyrirmyndar: Dekkjahöllin hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá upphafi mælinga eða frá 2010. Jafnframt hefur það fengið útnefningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni síðan 2017.
Starfsmannafélag fyrirtækisins er starfrækt á öllum stöðum og skipuleggur gaman saman og skemmtilegar fyrirtækjaferðir.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin óskar eftir að ráða starfsmann á hjólbarðaverkstæði, smurstöð og þvottastöð á Akureyri. Starfið felur í sér fjölbreytta vinnu við hjólbarðaþjónustu, smurþjónustu, bílaþvott og afgreiðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt vinna við hjólbarða- og smurþjónustu ásamt afgreiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og reynsla af bílaþjónustu kostur
- Stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára aldurstakmark
- Bílpróf
Advertisement published22. August 2025
Application deadline3. October 2025
Language skills

Required
Location
Draupnisgata 5, 603 Akureyri
Type of work
Skills
Tire serviceOil changePunctual
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Bifvélavirkjar - Akureyri
Höldur

Viltu ganga til liðs við vélaverkstæði ON?
Orka náttúrunnar

Smíði álhurða og glugga / Alu doors, windows fabrication
Fagval

Viðgerðarmaður á Vélaverkstæði
Vélavit ehf

Viðhaldsmaður tækja & búnaðar
ÞG Verk

Bílaumsjónarmaður
MAX1 | VÉLALAND

Ábyrgðafulltrúi BL
BL ehf.

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland
MAX1 | VÉLALAND

Starfsmaður í viðgerðarþjónustu
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Bifvélavirki/Mechanics (super jeeps and small busses)
Arctic Adventures

Bílaþvotta- og bónstöðvar starfsmaður óskast
Lindin Bílaþvottastöð

Bifvélavirki fyrir Velti
Veltir