Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Lækjamót

Velferðarsvið Suðurnesjabæjar leitar að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi í um 80% starf á heimili fatlaðs fólks.

Starfið felst í að veita íbúum einstaklingsmiðaðan stuðning í daglegu lífi með það að markmiði að efla sjálfstæði, samfélagslega þátttöku, öryggi og lífsgæði. Lögð er áhersla á virðingu, sjálfsákvörðunarrétt og valdeflandi þjónustu.

Helstu verkefni

  • Stuðningur við athafnir daglegs lífs samkvæmt þjónustuáætlunum og óskum íbúa.
  • Aðstoð við heimilishald, innkaup, matargerð og önnur dagleg verkefni.
  • Stuðningur við samfélagsþátttöku, tómstundir og félagslíf.
  • Persónuleg umönnun eftir þörfum.
  • Lyfjagjafir samkvæmt heimildum og verklagi.
  • Skráning þjónustu og upplýsinga í rafræn upplýsingakerfi.
  • Þátttaka í teymisvinnu, fundum, fræðslu og þróun þjónustunnar.

Hæfniskröfur

  • Framhaldsskólamenntun er kostur
  • Reynsla af þjónustu við fatlað fólk er æskileg.
  • Mjög góð samskiptafærni og mikil þjónustulund.
  • Jákvætt viðmót, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra.
  • Grunnfærni í tölvunotkun og góð íslenskukunnátta.

Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri, hafa hreint sakavottorð og ökuréttindi.

Starfið fer fram á heimili íbúa og í nærumhverfi þeirra. Unnið er á vöktum, þar á meðal kvöld-, nætur- og helgarvöktum samkvæmt vaktaskipulagi.

Um er að ræða um 80% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Ósk Guðbergsdóttir forstöðumaður með tölvupósti á [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf.

Við hvetjum áhugasamt fólk, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um.

Advertisement published8. September 2026
Application deadline21. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lækjamót 65, 245 Sandgerði
Type of work
Professions
Job Tags