IKEA
IKEA
IKEA

Starfsfólk vantar í bakarí IKEA

IKEA rekur glæsilegt bakarí þar sem fram fer vöruþróun og framleiðsla á ýmiskonar bakkelsi, tertum og brauðmeti.

Við leitum að áhugasömum aðilum í bakaríisteymið okkar; annars vegar starfsmanni í kleinubakstur og hins vegar starfsmanni í tertudeild.

Nánari upplýsingar:

https://ikea.umsokn.is/is/64

https://ikea.umsokn.is/is/65

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vöruframleiðsla
  • Tryggja gæði og stöðugleika í framleiðslu
  • Undirbúningur og almenn aðstoð við framleiðslu
  • Fylgja reglum um matvælaöryggi og góðum starfsháttum
  • Frágangur og þrif
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bakaraiðn kostur en ekki skilyrði
  • Reynsla af sambærulegu starfi skilyrði
  • Þekking á matvælaöryggi og góðum starfsháttum við framleiðslu matvæla
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni og frumkvæði
  • Íslensku- og/eða enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólki IKEA stendur til boða styrkur gegn því að nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu.
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum. Aðgengi að sumarbústöðum til einkanota.
  • Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti
  • Ávextir og hafragrautur í boði.
  • Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá utanaðkomandi fagaðila. Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.
  • Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.

 

Advertisement published25. August 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Kauptún 4, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags