Fjölskylduheimilið Hrafnkatla
Fjölskylduheimilið Hrafnkatla

Starfsfólk óskast í vaktavinnu á fjölskylduheimili

Fjölskylduheimilið Hrafnkatla, staðsett að Digranesvegi í Kópavogi, leitar að ábyrgu starfsfólki til að starfa í vaktavinnu (2-2-3). Heimilið leiðir daglegt starf með fjórum ungmennum á aldrinum 15–20 ára sem þurfa öruggt, stöðugt og stuðningsríkt heimili – til skemmri eða lengri tíma.

Um er að ræða gefandi starf þar sem lögð er áhersla á að skapa traust, stuðla að jákvæðri daglegri rútínu og efla félagsfærni ungmennanna. Starfið felur í sér náið samstarf við ungmennin í þeirra daglega lífi og vinnu eftir tengslamyndandi nálgun.

Við leitum að einstaklingum sem eru tilbúnir að vinna í vaktakerfi og taka þátt í mikilvægu uppeldis- og stuðningshlutverki. Starfið hentar vel með námi. Reynsla af starfi með börnum eða ungmennum er kostur. Um að ræða bæði dagvaktir og næturvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita ungmennum stuðning, umönnun og uppeldi í daglegu lífi.
  • Stuðla að jákvæðri og stöðugri rútínu. 
  • Halda heimili og skapa öruggt, hlýlegt og uppbyggilegt umhverfi. 
  • Samstarf við barnavernd, fjölskyldur og aðra fagaðila. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 23 ára og eldri.
  • Menntun sem nýtist í starfi æskileg, má þar nefna félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísindasviði. 
  • Reynsla af vinnu með börnum/ungmennum. 
  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og jákvæðni í starfi.
  • Hreint sakavottorð.
Fjölskylduheimilið að Digranesvegi í Kópavogi

Fjölskylduheimilið að Digranesvegi er fyrir ungmenni á aldrinum 15 til 20 ára sem geta ekki búið hjá upprunafjölskyldu sinni og þurfa öruggt, stöðugt og stuðningsríkt heimili. Við tökum á móti ungmennum í neyðarvistun, tímabundið fóstur og langtíma fóstur. Markhópur heimilisins eru ungmenni sem ekki hafa fengið fósturheimili þrátt fyrir þörf eða hafa dvalið í fósturheimili en geta ekki lengur búið þar vegna annarra ástæðna. Í starfi heimilisins er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða umönnun og uppeldi í heimilislegu og hlýlegu umhverfi. Við vinnum út frá tengslamyndandi nálgun og styðjumst við gagnreyndar aðferðir sem taka mið af þörfum hvers og eins. Áhersla er lögð á daglega rútínu, þátttöku í skóla, vinnu, frístund og/eða félagslífi. Náin samvinna er við barnaverndaryfirvöld og aðra fagaðila til að tryggja velferð, öryggi og farsæld ungmennanna. 

Advertisement published6. June 2025
Application deadline6. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Professions
Job Tags