
First Water
First Water starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn. Verkefnið nýtur afburða aðstæðna í Ölfusi þar sem gott aðgengi er að landrými, umhverfisvænni orku og ekki síst tæru ferskvatni og sjóvatni við kjörhitastig fyrir laxeldi. Uppbyggingin miðar að sjálfbærri og umhverfisvænni framleiðslu þar sem lax er alinn við kjöraðstæður í hreinum sjó sem dælt er upp í gegnum hraunlög á svæðinu og öll orka kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum vatns- og gufuaflsvirkjana Landsvirkjunar.
Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því mikla áherslu á að upp öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.
First Water kappkostar að bjóða upp á gott starfsumhverfi á skemmtilegum og samheldnum vinnustað

Starfsfólk í framleiðsluferli
Við leitum að fólki til að taka þátt í framleiðsluferlinu á starfstöð okkar á Laxabraut í Þorlákshöfn.
Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á nætur- og dagvöktum.
Helstu verkefni:
- Umsjón með slátrun
- Eftirlit með lífmassa
- Fóðrun
- Mælingar
- Þrif á búnaði og kerjum
Helstu kröfur:
- Stundvísi og vandvirkni
- Áhugi á dýrum og sjálfbærni
- Reynsla af samskonar starfi kostur
- Fjölbreytt tungumálakunnátta kostur
Umsóknafrestur er til og með 21. desember. Byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast.
First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.
Advertisement published10. December 2025
Application deadline21. December 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Laxabraut
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
