

Starfsfólk í aðhlynningu óskast til starfa á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða starfsfólk í 70-100% starf við aðhlynningu.
Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði.
Patreksfjörður er mjög fjölskylduvænn staður, þar eru leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóladeild ásamt öflugu íþróttastarfi. Börn hafa mikið frelsi og tækifærin til útivistar eru allt í kring.Margvísleg starfsemi er á svæðinu og næg atvinnutækifæri fyrir maka.
Aðhlynning og önnur tilfallandi verkefni. Þetta er kjörin staða fyrir þau sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í hvetjandi starfsumhverfi.
Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.
-
Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
-
Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
-
Stundvísi
-
Metnaður og ábyrgð í starfi
-
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur











