
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi er hluti af stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Allt starf Rauða krossins miðar að því að bregðast við og aðstoða þar sem neyðin er mest.
Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans veita aðstoð og dreifa hjálpargögnum í hverju landi fyrir sig. Þannig tryggir Rauðakrosshreyfingin að hjálpin komist beint til skila til þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð að halda. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru 190 en einungis eitt Rauða kross félag má starfa í hverju landi. Saman mynda Alþjóðaráð Rauða krossins, Alþjóðasambandið og landsfélögin, alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans.

Starf í móttöku
Rauði krossinn á Íslandi leitar að þjónustulunduðum og samskiptaliprum einstaklingi til starfa í móttöku félagsins að Efstaleiti 9.
Starfið felur í sér mikil samskipti bæði í síma og í persónu og þarf viðkomandi að geta tjáð sig vel bæði á íslensku og á ensku.
Um 50-60% tímabundið starf er að ræða í eitt ár með möguleika á framlengingu.
Æskilegt að viðkomandi gæti hafið störf sem allra fyrst.
Vinnutími:
- Eftir samkomulagi (óskum eftir aðila sem hefur kost á að vera sveigjanlegur með vinnutímann).
Helstu verkefni
- Almenn störf í móttöku, s.s. móttaka gesta og símsvörun
- Veita upplýsingar um starfsemi Rauða krossins
- Skráning þátttakenda á námskeið Rauða krossins
- Frágangur á pósti og móttaka pantana
- Önnur tilfallandi störf
Hæfnikröfur
- Rík samskiptahæfni og þjónustulund
- Góð tölvukunnátta
- Áhugi að vinna með fólki frá mismunandi menningarheimum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, þekking á öðrum tungumálum er kostur
- Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
Umsóknarfrestur er til 14. september og unnið verður úr umsóknum jafn óðum.
Sótt er um starfið á Alfreð.
Nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir ([email protected])
Advertisement published4. September 2026
Application deadline14. September 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsPhone communicationEmail communicationCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Lyfja Reyðarfirði - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Verkstæðismóttaka
Toyota

Apótekarinn - afgreiðsluflakkari
Apótekarinn

Starf í gestamóttöku og bar / Reception and bar
Hótel Akureyri

Strafsmaður í fiskverslun
Fiskur og félagar ehf.

Þjónustufulltrúi (tímabundið starf)
Dropp

Sölufulltrúi 66° Norður á Akureyri
66°North

Við leitum að metnaðarfullum hótelstjóra
Arnarstapicenter

Hlutastarf í MAC snyrtivöru
Hagkaup

Búllan á Reykjavíkurvegi hafnarfirði leitar að starfsfólki í kvöld og helgarvinnu
Hamborgarabúllan

Afgreiðsla / barþjónn - Funky Bhangra Smáralind
Funky Bhangra