
Júní
Við aðstoðum fjölbreyttan hóp fyrirtækja og stofana í stafrænni vegferð með ráðgjöf, hönnun & hugbúnaðargerð.

Stafrænn hönnuður hjá Júní
Sérhver díll (e. pixel) á skilið þína athygli!
Við hjá Júní erum að leita að forvitnum hönnuði til að ganga til liðs við okkur tímabundið til eins árs, þó með möguleika á framtíðarráðningu.
Við erum á fullu að hanna og smíða stafrænar lausnir fyrir mörg af framsæknustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Verkefnin eru fjölbreytt, metnaðarfull og skapandi. Við vinnum að stórum sem smáum verkefnum sem snerta á vöruhönnun, mörkun, markaðsvefum og öppum.
Dagur í lífi hönnuðar hjá Júní gæti innifalið að uppfæra hönnunarkerfi, búa til prótótýpur, vinna með kúnnum að notendaflæðum eða þjálfa vöðvana í foosball í pásunni!
Ef þú hefur áhuga og langar til að taka þátt í skemmtilegri hönnunarferð – sendu okkur þá umsókn!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun framúrskarandi stafrænna lausna í samstarfi við ráðgjafa og forritara Júní
- Fjölbreytt verkefni eins og markaðsvefir, stór notendamiðuð vefkerfi, öpp og hönnunarkerfi
- Náið samstarf við viðskiptavini, hag- og samstarfsaðila að skemmtilegum og skapandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Afburðagóð færni í Figma
- Reynsla af því að nýta gervigreind við hönnun, prótótýpur, notendaflæði og hönnunarkerfi
- Gott vinnuskipulag og framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Metnaður og áhugi á að efla eigin færni og kynna sér nýjustu strauma og stefnur í hönnun
- Kostur ef menntun í grafískri hönnun, UI & UX eða sambærilegu
Fríðindi í starfi
- Fallegt og kósý vinnuumhverfi
- Sveigjanlegur vinnutími og heimavinna í boði
- Sími og internet, íþrótta- og samgöngustyrkir og annað swag
- Aðgangur að líkamsrækt, skyr, ávextir og annað snarl
- Fagleg endurgjöf og tækifæri til að vaxa í starfi
Advertisement published10. November 2026
Application deadline24. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Bolholt 8, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
DriveFigmaArtificial intelligenceAmbitionUXUser InterfaceIndependencePlanningTeam work
Work environment
Professions
Job Tags


