Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Stafrænn vörustjóri gagna og skjala

Við leitum að öflugum og tæknilega þenkjandi stafrænum vörustjóra sem vill leiða þróun lausna fyrir gögn og skjöl hjá Orkuveitunni og dótturfélögum.

Hlutverkið snýr að því að móta og þróa stafrænar lausnir sem gera starfsfólki kleift að vinna með gögn og skjöl á einfaldan, öruggan og skilvirkan hátt. Þú vinnur náið með skjalastjóra, notendum, þróunarteymum, arkitektum og öryggissérfræðingum og tengir saman þarfir rekstrar, tæknilega möguleika og kröfur um meðhöndlun og varðveislu upplýsinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bera ábyrgð á framtíðarsýn, þróun og forgangsröðun stafrænna lausna fyrir gögn og skjöl.
  • Vörustýring á lausnum á borð við WorkPoint, SharePoint, Teams og aðrar M365-lausnir.
  • Leiða þróun öryggiflokkun gagna(Microsoft Purview)
  • Nýta AI, Copilot og agents til að einfalda skjalavinnslu, flokkun, leit, vistun og aðgengi að upplýsingum.
  • Greina tækifæri til sjálfvirknivæðingar og þróa lausnir og flæði sem draga úr handvirkri vinnu.
  • Vinna með API, samþættingar og gagnamódel og tryggja að lausnir vinni smurt saman
  • Móta roadmap, forgangsraða verkefnum og tryggja að þróun skili mælanlegum ávinningi fyrir starfsfólk og fyrirtækin.
  • Vinna náið með skjalastjóra að því að tæknilausnir styðji við reglur um skjalavörslu, varðveislu og grisjun.
  • Vinnur náið með öðrum stafrænum vörustjórum og tilheyrir vöruþróunarteymi.
Við leitum að einstaklingi sem
  • hefur reynslu af stafrænni vöruþróun, vörustýringu eða þróun upplýsingakerfa
  • hefur góðan tæknilegan skilning og getur átt samtal við bæði notendur og þróunarteymi
  • þekkir vel til Microsoft 365, SharePoint og Teams
  • kostur að hafa reynslu af öryggisflokkun gagna eða Microsoft Purview
  • skilur möguleika Copilot, AI-agenta, API og sjálfvirkni
  • getur sjálfur prótótýpað eða þróað lausnir; reynsla af forritun og þróun AI-agenta er kostur
  • getur greint þarfir, forgangsraðað og breytt flóknum áskorunum í einfaldar stafrænar lausnir
  • hefur góða samskipta- og samstarfshæfni og getur leitt breytingar þvert á einingar.
Við bjóðum þér
  • Fjölbreytt verkefni sem snerta samfélagslega mikilvæga innviði.
  • Sterkt teymi tæknifólks sem vinnur saman að umbótum og nýsköpun.
  • Mikla möguleika til að þróast faglega.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og umhverfi þar sem frumkvæði, ábyrgð og lausnaleit eru metin að verðleikum.
Hvers vegna Orkuveitan?

Orkuveitan samanstendur af móðurfélaginu og fjórum dótturfélögum; Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix og hefur það hlutverk að styðja vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.

Rannsóknir hafa sýnt að fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs og við hvetjum öll sem uppfylla grundvallarskilyrði starfsins til að sækja um, óháð því hvort þau haki í öll boxin. 

Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2026. Nánari upplýsingar veitir Kristrún Lilja Júlíusdóttir, Head of Digital Transformation; [email protected]

Advertisement published11. September 2026
Application deadline27. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags