66°North
66°North
66°North

Sölufulltrúi 66° Norður

66°Norður leitar að dugmiklum einstaklingum í verslanir 66°Norður á höfuðborgarsvæðinu og á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða fullt starf og hlutastarf. Viðtöl verða tekin jafnt og þétt yfir umsóknarfrestinn og því hvetjum við áhugasama til að sækja um sem fyrst.

Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.

Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Sjóklæðagerðin er með starfsemi í fjórum löndum: á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Höfuðstöðvarnar eru tvær, á Íslandi og í Kaupmannahöfn. Á Íslandi rekur fyrirtækið 11 verslanir undir merkjum 66°North, þar af þrjár á Akureyri: í Hafnarstræti, Skipagötu og Vitanum á Oddeyrarbryggju. Í Kaupmannahöfn eru þrjár verslanir, en þar opnaði fyrsta verslun 66°Norður utan Íslands árið 2014. Í London er verslun á Regent Street, sem opnaði árið 2022. Framleiðslan fer fram í tveimur eigin verksmiðjum fyrirtækisins í Lettlandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta viðskiptavini
  • Áfylling og framsetning vara
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu
  • Áhugi á sölumennsku
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku eða öðrum tungumálum er kostur
  • Reynsla af sölustörfum kostur
Advertisement published25. November 2026
Application deadline13. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
ChineseChinese
Optional
Beginner
Location
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags