
ELKO
ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, opnaði þann 28. febrúar árið 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi á sínu sviði á Íslandi.
ELKO hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða þekkt vörumerki raftækja á lágu verði.
Verslanir eru sex og með samtals 5.000 m2 sölusvæði auk stórs vöruhúss.
Hjá ELKO starfa um 240 manns. Verslanir ELKO eru í Lindum, Skeifunni, Granda, Akureyri, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vefverslun ELKO.is

Söluráðgjafi í ELKO Granda - hlutastarf
Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni og frábæru samstarfsfólki? ELKO á Granda leitar að starfsfólki sem er jákvætt og með mikla þjónustulund. ELKO leggur áherslu á góða nýliðamóttöku og þjálfun. Starf söluráðgjafa felur meðal annars í sér að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, verðmerkja og stilla upp vörum eftir verslunarstöðlum. Vinnutími er almennt frá kl. 11 - 18 á laugardögum og 12 - 18 á sunnudögum, aðra hverja helgi.
Helstu verkefni
- Ráðgjöf á vörum og þjónustu
- Áfylling og uppstilling
- Verðmerkingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni. N1 og Lyfju
- Aðgangur að velferðarpakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
Frekari upplýsingar um starfið veitir Lilja Kristín ([email protected]), verslunarstjóri.
Umsóknarfrestur er til og með 28.apríl.Hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um.
Advertisement published14. April 2026
Application deadline28. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Fiskislóð 15-21, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Tesla Customer Experience Specialist (Part-time) - Reykjavik
Tesla

Álnabær leitar af starfsmanni í verslun
Álnabær

Sölumaður í verslun
Hegas ehf.

Sölumaður í jeppabúð
Arctic Trucks Ísland ehf.

Helgarstarf í timbursölu / Weekend job in timber department
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Sölumaður / Afgreiðsla / Vogue Akureyri
Vogue

Starfsfólk óskast/Seeking employees
S4S Premium Outlet

Síminn leitar að öflugu sölufólki!
Síminn

Sölumaður á landbúnaðarsviði
Lífland ehf.

Hvolsvöllur: Sumarstarf í timbursölu með möguleika á framtiðarstarfi
Húsasmiðjan

Hvolsvöllur: Söluráðgjafi í framtíðar – og sumarstörf
Húsasmiðjan