
Fast Parts ehf.
Fast Parts er varahlutaverslun með starfsstöðvar í Hafnarfirði og á Akureyri. Fyrirtækið sérhæfir sig í varahlutum, dekkjum og rekstrarvörum fyrir bíla, vinnuvélar, landbúnaðartæki og önnur tæki.
Söluráðgjafi
Fast Parts er ört vaxandi fyrirtæki sem starfar á sviði varahluta, dekkja og rekstrarvara fyrir bíla, vinnuvélar, landbúnaðartæki og aðrar vélar.
Við leitum að öflugum söluráðgjafa í verslun okkar í Hafnarfirði. Starfið felur fyrst og fremst í sér sölu, þjónustu og ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja.
Við leggjum meiri áherslu á rétt viðhorf, drifkraft og vilja til að læra en að þú kunnir allt frá fyrsta degi. Fyrir réttan einstakling eru góð tækifæri til að vaxa í starfi, taka að sér meiri ábyrgð og þróast áfram með fyrirtækinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
- Móttaka og samskipti við viðskiptavini í verslun, síma, tölvupósti og á miðlum Fast Parts
- Tilboðsgerð, eftirfylgni og uppbygging viðskiptasambanda
- Þátttaka í sölu- og markaðsstarfi
- Ýmis tilfallandi verkefni tengd daglegri starfsemi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og áhugi á sölu
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðhorf
- Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Gild ökuréttindi
- Reynsla af sölu og þjónustu
- Áhugi eða þekking á bílum og tækjum er kostur
Advertisement published28. August 2026
Application deadline20. September 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Trönuhraun 8, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður á þjónustuver og í verlsun óskast
AB Varahlutir

Icewear Þingvöllum óskar eftir
ICEWEAR

Hlutastarf í Herrafataverslun Stout
Stout herrafataverslun

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Sölufulltrúi - BYKO Akureyri
Byko

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Sölu- og þjónusturáðgjafi - hlutastarf
Flügger Litir

Hlutastarfsmaður í Augað gleraugnaverslun Kringlunni
Augað gleraugnaverslun

Vehicle Readiness Specialist - Reykjavik
Tesla

Sales Advisor - Reykjavik
Tesla

Sales Advisor - Akureyri
Tesla

Sölufulltrúi / Matvara
Iðnmark