Hringdu
Hringdu
Hringdu

Sölufulltrúi óskast!

Hæ!

Við auglýsum eftir framúrskarandi einstaklingum í söluver Hringdu. Um hlutastarf er að ræða þar sem unnið er á 4 klst vöktum, á virkum dögum milli 12 og 18. Aldurstakmark er 18 ár.

Í starfinu felst að selja vörur og þjónustu Hringdu til núverandi og nýrra viðskiptavina. Þú geislar af jákvæðni, hugsar í lausnum, elskar mannleg samskipti og vilt umfram allt veita bestu söluráðgjöfina!

Hvað ertu að fara gera?

  • Selja áskriftir fyrir internet & síma
  • Hringja út sölulista og veita ráðgjöf til núverandi viðskiptavina
  • Afgreiða pantanir og breytingar á þjónustum
  • Eiga samskipti við okkar helstu þjónustuaðila
  • Tækla ýmis önnur verkefni sem koma upp á

Ef þú hefur:

  • Gaman af sölumennsku og öðru fólki
  • Góða samskiptahæfileika og mikla þjónustulund
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu

Ættirðu að sækja um hjá okkur!

Þú getur skilað inn umsókn ásamt ferilskrá í Alfreð umsóknarkerfinu.

Um okkur

Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum sendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar og skálum alla föstudaga. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi, hvítan Monster, ketti & hunda.

Hringdu hefur hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndafyrirtæki VR árin 2017, 2018, 2019 og 2023 og sem Fyrirtæki ársins 2020, 2021, 2022, 2024 & 2025.

Hringdu er vinnustaður í fremstu röð samkvæmt starfsánægjumælingum Moodup árið 2024.

Ánægðustu viðskiptavinir í net- og símaþjónustu eru hjá Hringdu 2019-2025 samkvæmt Meðmælingu Maskínu.

Fríðindi í starfi
  • Aðgangur að Hopp hjólum
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Frí net- og símaáskrift
Advertisement published7. November 2025
Application deadline21. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Ármúli 27, 108 Reykjavík
Type of work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags