Byko
Byko
Byko

Sölufulltrúi - Lagnaverslun Breidd

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingu til liðs við okkur í lagnaverslun BYKO í Breiddinni. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga og fjórða hvern laugardag frá 10:00-14:00.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Reynslu af sölu- og eða þjónustustarfi
  • Þekkingu á lagnaefni, kostur en ekki nauðsyn
  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Íslenskukunnátta, skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
  • Afgreiðsla til viðskiptavina

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Árni B. Kvaran, rekstrarstjóri (arnibk@byko.is).

Advertisement published16. September 2024
Application deadline30. September 2024
Language skills
IcelandicIcelandicIntermediate
Location
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags