

Sölufulltrúi í Blómaverslun
Við leitum er að kraftmiklum einstaklingi í starf sölufulltrúa í blómaafgreiðslu og í verslun. Um er að ræða spennandi starf í lifandi og litríku umhverfi þar sem helstu verkefni eru sala, ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini. Umhirða vinnusvæðis ásamt öðrum almennum verslunarstörfum, Blómaskúr Villu er ekki aðeins blómverslun, verslunin selur einnig fallega hluti fyrir heimilið, allt frá húsgögnum til fallegra skrautmuna fyrir heimilið. Blómaskúr Villu er fjölskyldufyrirtæki sem hefur það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og að aðstoða viðskiptavini okkar að fegra heimili sitt og umhverfi.
Starfreynsla úr blómaverslun og af sölustörfum æskileg
Reynsla eða þekking af blómaskreytingum er æskileg
Getað unnið sjálfstætt
Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
Gott vald á íslensku
Listrænt auga og fagurfræileg hugsun













