

Slökkvitækjaþjónusta á Akureyri
Securitas á Akureyri leitar að kraftmiklum einstakling í framtíðarstarf við slökkvitækjaþjónustu. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem við kemur slökkvitækjum og slökkvibúnaði. Lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð, jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.
Ef þú...
býrð yfir góðum samskiptahæfileikum og þjónustulund
ert lausnamiðuð/aður og sýnir sjálfstæði í starfi
ert með metnað, stundvís og snyrtimennskuna í fyrirrúmi
hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
... þá gætum við verið að leita af þér!
Í boði er fullt starf sem hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Már Sigurðsson, deildarstjóri, í síma 580-7000.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Icelandic






