Kaldrananeshreppur
Kaldrananeshreppur
Kaldrananeshreppur

Skólastjóri óskast við Grunnskólann á Drangsnesi

Við leitum að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga til að gegna starfi skólastjóra við Grunnskólann á Drangsnesi.
Um er að ræða 100% starf frá 4. ágúst 2026.

Grunnskólinn á Drangsnesi er fámennur skóli þar sem margir árgangar eru í samkennslu og áhersla lögð á einstaklingsmiðað nám. Skólinn leggur áherslu á gott samstarf við grenndarsamfélagið og nágrannaskólana auk útikennslu, ræktun og sköpun.

Í Grunnskólanum á Drangsnesi verða um 10 nemendur næsta skólaár á aldrinum 9 – 15 ára, að auki er verið að stofna samrekinn leikskóla undir sama þaki þar sem 5 - 7 nemendur verða næsta skólaár.
Tveir kennarar auk skólastjóra sinna kennslu í grunnskóla. Tveir starfsmenn eru í leikskólanum, deildarstjóri og leikskólakennari.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita skólanum faglega forystu
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
  • Stuðla að góðu samstarfi starfsfólks, nemenda, foreldra og nærsamfélags
  • Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
  • Stýra og þróa skólastarf í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrár
  • Efla jákvætt, öruggt og uppbyggilegt skólasamfélag
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar 

Advertisement published2. July 2026
Application deadline14. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Aðalbraut 10, 520 Drangsnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags