

Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja laust til umsóknar
Við leitum að kraftmiklum og framsæknum leiðtoga sem hefur skýra sýn á þróun framhaldsskólastigsins og getu til að leiða öflugt starf Fjölbrautaskóla Suðurnesja inn í framtíðina. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er áfangaskóli sem var stofnaður árið 1976 og fagnar því 50 ára afmæli í ár. Skólinn byggir á því að lögð er jöfn áhersla á bóknám og verknám og er námið sniðið að breiðum hópi nemenda. Þessar fjölbreyttu námsleiðir kalla á víðtækt samráð og samstarf við ótal hagaðila. Skólinn starfar eftir annakerfi og þjónar nemendum af Suðurnesjum og öllu landinu. Starfsfólk skólans er um 100 og fjöldi nemenda er um 1000 í dagskóla en auk þess eru um 150 nemendur í síðdegisnámi og 150 grunnskólanemar sem sitja einstaka áfanga.
Á næstu misserum verður lögð aukin áhersla á að styrkja stjórnsýslu og umgjörð framhaldsskóla, auk gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Saman þurfum við að tryggja að skólarnir búi nemendur undir framtíð sem einkennist af hraðri tækniþróun, nýjum hæfnikröfum og síbreytilegu samfélagi. Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga sem hefur vilja og getu til að starfa með starfsfólki og nemendum að áframhaldandi þróun skólans.
Skólameistari er faglegur leiðtogi í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla. Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.
-
Umsækjendur skulu hafa starfsheitið kennari og hafa viðbótarmenntun í stjórnun eða reynslu sem veitir sérhæfða hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu.
-
Framúrskarandi leiðtogahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti og frumkvæði ásamt færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
-
Farsæl reynsla af breytingastjórnun og stefnumótun. Einnig hæfni til að leiða breytingar af jákvæðni og setja nemendur og gæði menntunar í forgang.
-
Skýr framtíðarsýn þegar kemur að mótun skólastarfs á framhaldsskólastigi.
-
Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og sterk sýn til nýsköpunar og þróunar í skólastarfi.
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileiki til að sameina starfsfólk um skýra stefnu á umbrotatímum.
-
Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu, fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Icelandic


