Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Skólaliði

Í Salaskóla vantar skólaliða til að sinna aðstoð í eldhúsi og matsal, ræstingu o.fl.

Salaskóli tók til starfa haustið 2001 og er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. árgangi. Í Salaskóla eru ríflega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Í skólanum er faglegt og metnaðarfullt starf undir einkunnarorðunum vinátta - virðing - samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Starf skólaliða er þjónustustarf sem meðal annars felur í sér aðstoð og frágang í mötuneyti og matsal, aðstoð við undirbúning máltíða, ræstingu skólahúsnæðis og þvotti, sem og aðstoð við nemendur og gæslu í opnum rýmum og á skólalóð. Ráðning er tímabundin, umsækjandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst og unnið til skólaslita í byrjun júní 2026. Starfshlutfall getur verið sveigjanlegt, 70-100%

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð og frágangur í mötuneyti, matsal og kaffistofu skólans, aðstoð við undirbúning máltíða, samkvæmt áætlunum og verkefnalýsingum
  • Ræsting skólahúsnæðis og þvottur
  • Gæsla og stuðningur við nemendur á opnum svæðum skólans og á skólalóð
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og gildunum vinátta-virðing-samstarf
  • Samstarf við alla aðila skólasamfélagins um hagsmuni nemenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
  • Ríkuleg þjónustulund
  • Stundvísi og reglusemi
  • Vera tilbúin að vinna eftir stefnu skólans og geta tekið leiðsögn
  • Frumkvæði og jákvæðni
  • Grunnþekking og færni á íslensku talmáli 
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published14. January 2026
Application deadline20. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Basic skills
Location
Versalir 5, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Work environment
Professions
Job Tags