Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli - 50-60% starf

Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf, á frístundaheimilið Álfakot.

Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 - 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 - 12 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Starfið felur í sér stuðning og stýra hópum í frístundastarfi skólans. Vinnutími er á tímabilinu 11:00-16:30.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfa á frístundaheimili fyrir yngri nemendur
  • Stýra hópi í frístundastarfi
  • Starfa með fjölbreyttum nemendahópi
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgjast með og aðstoða börn í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, margreth@engidalsskoli.is og Magnea Dís Birgisdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið magnea@engidalsskoli.is eða í síma 555-4433.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2024.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published15. October 2024
Application deadline29. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
Location
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags