Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita

Skipulagsfulltrúi

Laus er til umsóknar staða skipulagsfulltrúa hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

Skipulagsfulltrúi starfar með sameiginlegri skipulagsnefnd sveitarfélaganna á svæðinu. Hann hefur umsjón með skipulagsgerð á svæðinu og hefur eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi. Skipulagsfulltrúi skal uppfylla kröfur um menntun og starfsreynslu samkvæmt 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón skipulagsmála í sveitarfélögunum
  • Útgáfa framkvæmdaleyfa
  • Leiðbeiningar til sveitarfélaganna um skipulagsmál
  • Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
  • Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
  • Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni í ræðu og riti
  • Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published13. May 2025
Application deadline26. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Dalbraut 12, 840 Laugarvatni
Type of work
Professions
Job Tags