Dýralæknaþjónusta Kópavogs ehf.
Dýralæknaþjónusta Kópavogs ehf.
Dýralæknaþjónusta Kópavogs ehf.

Skipulagður dýravinur í móttöku og verslun hjá DÝRKÓ

Við hjá Dýralæknaþjónustu Kópavogs (DÝRKÓ) erum að leita að skipulögðum og hressum liðsauka til að sjá um móttökuna okkar og verslunina. Við erum lítið og samheldið teymi sem leggur metnað í að láta dýrunum og eigendum þeirra líða sem best hjá okkur.

Við erum nýflutt í glæsilegt húsnæði í Kópavogi og okkur vantar manneskju sem getur hjálpað okkur að láta daglega rútínu í móttökunni ganga eins og smurð vél.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þetta starf er sambland af þjónustu og umsjón. Þú ert fyrsta andlitið sem fólk mætir:

  • Móttakan: Taka á móti fólki og dýrum, svara í síma og bóka tíma.
  • Verslun og lager: Sjá um að panta fóður og vörur, taka upp úr kössum og passa að hillurnar okkar líti vel út.
  • Hreinlæti og þrif: Tryggja hreint og snyrtilegt vinnuumhverfi í biðstofu, skoðunarstofum og öðrum svæðum.
  • Létt aðstoð: Aðstoða okkur við skráningar eða grípa inn í ef dýralæknarnir þurfa aukahönd.
  • Umsjón: Passa að biðstofan og verslunin séu alltaf snyrtileg og bjóðandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Við þurfum fyrst og fremst manneskju sem er:

    • Skipulögð: Þú hefur gaman af því að hafa hlutina í röð og reglu (og finnst jafnvel gaman að raða í hillur!).
    • Vinaleg: Þú ert með góða nærveru og átt auðvelt með að ræða við fólk (og klappa dýrum).
    • Sjálfstæð: Þú sérð hvað þarf að gera án þess að þurfa alltaf að biðja um leiðbeiningar.
    • Tölvufær: Þú átt auðvelt með að tileinka þér ný tölvukerfi og vinnur hratt í tölvupósti.
Um Dýralæknaþjónustu Kópavogs:

Dýralæknaþjónusta Kópavogs (DÝRKÓ) var stofnuð í janúar 2023 og hefur það að markmiði að veita persónulega, góða og faglega þjónustu í björtu og hlýlegu umhverfi. Við leggjum ríka áherslu á að skapa traust samband við viðskiptavini okkar og gefa hverjum einstaklingi og dýri þann tíma sem þörf er á. Hjá okkur eru öll gæludýr, stór og smá, velkomin. Við erum nýlega flutt í stærra og betra húsnæði í Hjallabrekku 2 í Kópavogi.

Vinnutími

Unnið er alla virka daga frá 8-16 eina vikuna og 9-17 aðra. Einnig er unnið annanhvern laugardag frá 10-14

Advertisement published16. February 2026
Application deadline26. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Basic skills
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Hjallabrekka 1, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Customer checkoutPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Product presentationPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags