Læknastofur Reykjavíkur
Læknastofur Reykjavíkur
Læknastofur Reykjavíkur

Skapandi markaðsfulltrúa með góða reynslu á samfélagsmiðlum óskast

Ertu hugmyndarík/ur, hefur gaman af samfélagsmiðlum og finnst ekkert mál að grípa símann og búa til skemmtilegt efni?

Við erum að leita að markaðsfulltrúa sem vill vera með puttann á púlsinum og hjálpa okkur að miðla fróðlegu og áhugaverðu efni um starfsemi okkar á sviði lýtalækninga og fegrunarmeðferða.

Við leitum að skapandi, sjálfstæðri og félagslyndri manneskju með góða reynslu sem hefur áhuga á okkar starfssviði og langar að taka þátt í að kynna starfsemi stofunnar faglegan og skemmtilegan hátt. Við viljum fá til okkar einstakling sem hefur frumkvæði og hefur gaman af því að sjá hugmyndir verða að veruleika.

Starfshlutfall er eftir nánara samkomulagi.

Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur og vera hluti af frábæru og skemmtilegu teymi, þá viljum við endilega heyra frá þér!

Sendu okkur ferilskrá og segðu okkur aðeins frá þér. Ef þú ert með TikTok eða Instagram sem sýnir sköpunargáfu þína og áhuga á efnisgerð, endilega láttu það fylgja með.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Búa til, taka upp og birta efni á Instagram, Facebook og TikTok
  • Skipuleggja viðburði og taka þátt í öðru sem tengist kynningu stofunnar og starfsemi hennar
  • Sjá um efni og uppfærslur á heimasíðunni, þar á meðal að skrifa og birta fréttir og fróðlegt efni um starfsemi stofunnar
  • Skrifa og móta texta fyrir samfélagsmiðla, vefinn og annað markaðsefni
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á markaðssviði er æskileg.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur 
  • Góð þekking og reynsla af samfélagsmiðlum 
  • Faglegur metnaður og frumkvæði 
  • Góð tölvukunnátta 
  • Lipurð og gott vald á mannlegum samskiptum
  • Jákvætt og þjónustumiðað viðmót 
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Stundvísi og áreiðanleiki 
Advertisement published20. August 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Efstaleiti 27c
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Facebook Business ManagerPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.TikTok
Professions
Job Tags