Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Sjúkraþjálfari á Ísafirði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa á Ísafirði. Hér gefst kjörið tækifæri til að öðlast breiða þekkingu innan fagsins, vinna með skemmtilegu fólki og verða hluti af góðri liðsheild.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Unnið er með breiðum skjólstæðingahópi og er meðferð veitt á göngudeild og legudeildum sjúkrahússins.

Mörg tækifæri eru til aukinnar heilsueflingar svo sem með námskeiðum og fræðslu fyrir einstaklinga og hópa.

Helstu verkefni eru:

  • Skoðun, mat og meðferð

  • Skráning og skýrslugerð

  • Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í þverfaglegum teymum

  • Þátttaka í fagþróun

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Embætti landlæknis

  • Sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót

  • Faglegur metnaður

Advertisement published11. March 2026
Application deadline31. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Torfnes, 400 Ísafjörður
Type of work
Professions
Job Tags